Þetta er einfaldlega rangt.
Mbl.is gerir lesendum sínum ekki greiða með því að skrifa beint upp fréttatilkynningar sem þeir fá sendar. Amk ekki þegar eru svona augljósar staðreyndavillur í þeim.
Það er við hæfi að ljóstra því upp að þar sem ég vinn hjá Símanum, sýni ég þessu fréttaefni meiri áhuga en öðru. Ég er ekki að setja út á Nova eða Vodafone, heldur þunna blaðamennsku mbl.is.
hvar getur maður keypt erlenda tónlist löglega? jaðarþjónustur eins og beatport og emusic telja ekki
tsk, tsk, “Á fyrsta sinn” þýðir í fyrsta sinn, ekki “í fyrsta sinn, fyrir utan …”
E-music eru með lélegt eða ekkert úrval af topp 40 tónlist í dag, en sæmilegt af alternative og eldri tónlist og telja 65228 hljómsveitir/listamenn.
Fyrir utan E-music má nefna CDBaby.
Einnig eru þónokkrar plötuútgáfur að selja sína tónlist á netinu (fyrir utan útgáfurisana fjóra, Emi, Universal, Sony og Warner).
Svo voru Radiohead voru að gefa selja plötuna sína á netinu.
En það er rétt að þetta er í fyrsta sinn sem íslendingar geta keypt tónlist af útgáfurisunum með löglegum hætti.
Og meira : http://mbl.is/mm/frettir/taekni/2008/02/02/tilbod_a_askrift_og_3g_simum_hja_nova/
Titill : Tilboð á áskrift og 3G símum hjá Nova
Efni : Nova býður 3G farsímanotendum fría notkun að andvirði 1.000 kr. á mánuði í eitt ár ef þeir koma í viðskipti til Nova. Öllum sem kaupa sér nýjan 3G farsíma hjá Nova býðst að nota símann endurgjaldslaust fyrir 2.000 kr. á mánuði þegar gengið er til liðs við Nova. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
„Munurinn á GSM og 3G farsímaþjónustu liggur fyrst og fremst í meiri afkastagetu og auknum hraða 3G. Þar sem Nova sérhæfir sig í 3G farsímaþjónustu getur félagið boðið mun lægra verð en samkeppnisaðilarnir, enda löngu kominn tími á virka samkeppni á farsímamarkaði,â€? segir Liv Bergþórsdóttir framkvæmdastjóri Nova, í tilkynningu.
[...] er mjög furðuleg þessi hefð í fjölmiðlum á Íslandi að í fréttum eru birtar auglýsingar auglýsendum að kostnaðarlausu. Eina skilyrðið er að það standi [...]