Ég er farinn að nota farsíma(vef)viðmót mbl.is meira og meira á einkatölvunni upp á síðkastið og langar aðeins að velta fyrir mér (og þér) af hverju.
Hér eru skjámyndir af farsímaviðmóti mbl.is og vefviðmótinu til samanburðar:
1)Farsímaviðmótið er ekki jafn drekkhlaðið af auglýsingum og vefviðmótið í fullum skrúða. Ég skil að vefurinn þurfi að afla sér tekna, en fjórar auglýsingar (sem hreyfast í “lúppu”) í kringum textann sem ég er að lesa er full mikið “distraction”.
2)Farsímaviðmótið er mun takmarkaðra en vefviðmótið, en fyrir mér þá býður það upp á allt sem ég tengi beint við Moggann sem fréttamiðil (innlent, erlent, viðskipti, íþróttir, fólk og tölvur og tækni). Allt sem er ekki í boði, þ.e. efni sem þeir kalla sérvefir (bloggið, embla, barnaland, 24 stundir o.fl), er efni sem hreinlega þvælist fyrir mér þegar ég vil skoða fréttirnar.
Þetta er eflaust persónubundið, en hvað finnst þér?
Heyr! Heyr! Frábær hugmynd að nota bara mobile viðmótið. Ég er nánast hætt að lesa mbl en kannski verður það læsilegt með þessu móti.
Sammála þér, allt of cluttered vefur og þessar auglýsingar gera mann brjálaðan! Varstu annars búinn að sjá mbl projectið hans Ragga:
http://ragnarfreyr.com/mbl
Ég er búinn að nýta mér þetta ansi mikið í núna uþb 1 ár.
Þetta nefnilega fínasti tímaþjófur þegar maður er að bíða eftir tíma uppí skóla eða einhverjum
Já, skemmtileg pæling hjá Ragga. Hlakkar til að sjá hvað kemur úr henni.