Arnþór Snær


Bronsaður

Það er gaman að segja frá því að ég vann bronsið í Young-Now leiknum á ColorWar 2008. Leikurinn gekk út á að finna mynd af sér ungum og taka svipaða mynd af sér í nútímanum. Þar sem mamma* hafði nýlega gefið mér skemmtilega mynd af mér í hlíðunum (síðan sirka 1982), ákvað ég að taka þátt og fékk Betu með til að ljósmynda.

Árangurinn lét ekki á sér standa:

Myndirnar eru hér og hinir sigurvegararnir eru hér.

*bara svo það komi skýrt fram, þá á móðir mín auðvitað stærstan hluta í þessum verðlaunum því án hennar þá hefði nú ekki orðið mikið úr þessu

—-
Uppfært:


...

Birt þann 21.04.2008 kl. 19:41.


til hamingju. Það er samt rugl að þú hafir ekki fengið 1. sæti þar sem 1. og 2. var drasl í samanburði við þína mynd.


Arrrg… argss..s.s..ssssassta snilld. Og hvað trén hafa stækkað (sjá bakgrunn).

Lells.


Mín sigurvegararöðun (for what it´s worth)

3. Gella með gleraugu
2. Arnþór
1. Mischievous look

Það var erfitt að velja á milli fyrsta og annað sæti…. og eftir að hafa marínerað þetta í smá tíma þá hefðiru getað fengið nágrannan til að færa bílinn og reynt að fara í betri peysu. Þau fá mitt 1. sæti fyrir að hafa lagt meira í fatnaðinn.


til hamingju, flott stuff! Verður að fá þér Star Wars mimobot í verðlaun!


mamma var nú helst fúl að það var ekki jeppi inn á gömlu myndinni því nágranninn lagði víst alltaf jeppa þarna á sama stað! svo nýrri myndin er kannski “sannari” en sú gamla.


hah! magnað.. rakst á þessa mynd af þér þarna fyrir nokkru síðan af tilviljun, og fannst hún einmitt svo brilliant :)

Jónas Tryggvi - 17.05.2008 - 10:03

Hefurðu skoðun?

Your email is never shared. Required fields are marked *

*
*