Það var hljómsveitaræfing (via Rock Band) heima hjá mér og B síðastliðið föstudagskvöld. Þar sem allar hljómsveitir þurfa nafn og ímynd, benti MD mér á að þessi aðferð gæti verið sniðug.
Hugmyndin er að finna einhverja grein á Wikipedia og nota heiti greinarinnar sem hljómsveitarnafn, þar næst að finna tilvitnun og nota seinustu 4-5 orðin sem titil fyrstu plötunnar. Svo finna mynd á flickr sem verður mynd umslags. Allt handahófskennt.
Að lokum er þetta tekið saman og sett á vefinn.
Hér eru góð dæmi:
Þetta efsta er alveg frábært! Margt af þessu hefur verið mjög forvitnilegt og þetta meme fór sem eldur í sinu um veraldarvefinn! Var að ræða þetta fyrir helgi með lókal hljómsveitarstrákum sem þótti vera “noun bias” í þessari aðferð, úr þessu spunnust skemmtilegar en nördalegar umræður…