Arnþór Snær


Hvað er vefdagbók?

Ég vil vera með blogg, hafa það til staðar. Mér finnst svolítið atriði að það líti sómasamlega út. Aftur á móti eru takmörk fyrir því hvað sjaldan uppfærð blogg (e. weblog) geta komið vel fyrir.

En ég er þokkalega virkur á vefnum. Ég tek þátt í smáskilaboða og örblogg-fyrirbærinu Twitter, spjalla við vini, vinnufélaga og fjölskyldu á Facebook og kommenta á hitt og þetta um hvippinn og hvappinn. Einnig tek ég myndir og videó og bý syrpur endrum og eins. Aftur á móti endurspeglar vefdagbókin það ekki.

Þetta þarf að (endur)skoða…


...

Birt þann 09.07.2009 kl. 12:40.


Spurning um að flytja vefdagbókina þína á tumblr? Auðveldara að útbúa stuttar og media-centered færslurs.

http://www.tumblr.com
Mitt: http://www.ragnarfreyr.tumblr.com


og dyggir lesendur sakna reglulegra skrifa þinna á blogginu


Ragnar, tumblr er einmitt í áttina, en ég vil helst hýsa þetta sjálfur.

Ég er nefnilega ekki að leita að nýrri græju sem getur haldið utan um efni og komment, heldur er ég meira að hugsa um hugbúnað sem safnar saman vef fótsporum mínum. Kannski ætti ég að skoða svona “lifestream” græjur.

Takk Begga :)


Fann wordpress viðbót sem heitir WP Lifestream sem ég skellti á forsíðuna + nýja síðu sem heitir “á vefnum“.

Segjum að þessari endurskoðun sé lokið í bili.


Hefurðu skoðun?

Your email is never shared. Required fields are marked *

*
*