Arnþór Snær


music

Stuff your stocking with Sin

During last year’s summer I released Synd (e. Sin) as a single mp3, but due to incredible, unholy demand, I will be releasing each and every track, individually until christmas starting the 15th of november. You can subscribe via iTunes to receive them all, or just visit regularly to get your fill.


Tónlist.is

Síðan íslenska tónlistar-vefverslunin Tónlist.is var sett á laggirnar hafa margir, m.a. ég, gagnrýnt innbyggðar takmarkanir í tónlistarskránum sem þeir bjóða upp á. Þessar takmarkanir ganga almennt undir nafninu DRM, en um er að ræða takmörkun á hvaða spilara ég get hlutað á lag með, hvort ég geti brennt það, sett á mp3 spilarann og svo [...]


Yellow Magic Orchestra í hljóðverinu

Yellow Magic Orchestra búa til gull í hljóðverinu Svo eru þeir líka að spekúlera


tónlistarbransinn

Hérna er frekar skemmtilegt spjall við John Buckman stofnanda Magnatunes, sem er plötufyrirtæki sem gerir hlutina aðeins öðruvísi en flest önnur plötufyrirtæki. Mæli með þessu fyrir þá sem hafa áhuga á nýjum möguleikum sem internetið býður tónlistarmönnum og plötufyrirtækjum.


metsala á breiðskífum

Financial Express Bangladesh greinir frá því í dag að breiðskífusala í bretlandi á 12 mánuða tímabili [sept-03 til sept-04] hefur aldrei verið meiri, en seldi bransinn 237 milljón breiðskífa samkvæmt samtökum plötuútgefenda þar í landi, British Phonographic Industry, BPI. Þetta gengur þvert á yfirlýsingar plötuútgefenda í Bretlandi og Bandaríkjunum þess efnis að sala tónlistar væri [...]


tónlist tónlist

Jæja, þá eftir langa bið hefur maður loksins komið sér aftur í að kaupa sér tónlist. Hef í nokkuð langan tíma látið mér það nægja að hlusta á þá tónlist sem ég á í safninu og það sem fellur til úr músík söfnum annara. Ég hef komist upp á lagið með að brúka tónlist stafrænt [...]


peaches

klink og bank fá props fyrir flotta tónleika peaches sem ég er að koma af núna. svona næstum því amk, hljóðkerfið var stundum leiðinlegt. Performancinn hjá Peaches var þó frábær… leiðinlegt ef þið hafið misst af því… Egill Snæbjörns var í hlutverki upphitunar, og gerði hann frekar lítið annað en að stytta biðina í Peaches.. [...]


midihanskar

Hér gefur að líta mjög flotta græju frá noDNA. Hanskar til að stjórna öllu sem tekur við midi, t.d. tónlistarforritum, ljósagræjum og fleiru. Því miður kosta tveir hanskar og fylgihlutur 1399 evrur sem er 110 þús eða u.þ.b. sem er aðeins of rich for my blood..


traject

gísli þór guðmundsson aka traject var að gefa út plötuna strengir hrynja. Þetta er dökk og köld raftónlist í anda autechre en þó með séríslenskum strengja-áhrifum. Þess má geta að hann vann seinustu raftónlistarkeppni hugi.is sem ég dæmdi í ásamt fleirum með laginu Water for muddy people.


ert þú skotmark riaa

riaa eru að reiða fram kærur á hendur fjölda fólks sem hefur boðið tónlist á netinu í gegnum ýmsar P2P þjónustur ert þú skotmark riaa? Það er ekki líklegt þar sem þetta er líklegast bara í bandaríkjunum en hérna er gagnagrunnur sem þú getur leitað í


« eldri færslur ...